Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Viðlagatrygging Íslands. Styrkir til verkefna sem ætlað er að varna eða draga úr tjóni af völdum náttúruhamfara. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar
19. janúar 2012
Stjórn Viðlagagatryggingar Íslands hefur sett sér reglur um styrkveitingarnar sem má nálgast á heimasíðu félagsins, www.vidlagatrygging.is undir„Forvarnir“.
Heimilt er að veita styrki til eftirfarandi:
1. Rannsókna.
2. Framkvæmda til að varna eða draga úr tjóni vegna náttúruhamfara.
3. Fræðslu og þjálfunarmála landssamtaka sem eru með samstarfssamning við Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra um skipan hjálparliðs.
Styrkumsókn skal fylgja greinargerð þar sem lýst er á hvern hátt umrætt verkefni stuðli að því að efla forvarnir eða draga úr tjóni á tryggðum eignum vegna náttúruhamfara.
Einnig skal fylgja tíma-og kostnaðaráætlun. Styrkumsókn skal fylgja staðfesting á fjárframlagi frá öðrum styrktaraðilum verkefnisins eða vilyrði um fjárstyrk eða fjárframlag frá öðrum aðilum eftir því sem við á.
Athygli er vakin á því að styrkveitingar eru aðeins afgreiddar einu sinni á ári. Afgreiðsla styrkveitinga fer fram í mars ár hvert. Umsóknum skal skilað skriflega í bréfpósti. Öll tilskilin fylgigögn þurfa að berast með umsókn, að öðrum kosti eru umsóknir ekki teknar til umfjöllunar.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2012.
Umsóknir skulu sendar til:
Viðlagatrygging Íslands, v/styrkumsóknar, Borgartúni 6, 105 Reykjavík
Sjá auglýsingu hér
Sjá einnig heimasíðu Viðlagatryggingar hér

























