Orkurannsóknarsjóður Landsvirkjunar auglýsir styrki til náms og rannsókna á sviði umhverfis- og orkumála. Umsóknarfrestur til 9. janúar
30. nóvember 2011
Til úthlutunar eru allt að 58 milljónir króna. Markmið sjóðsins er að veita styrki til námsmanna, rannsóknarverkefna á vegum háskóla, stofnana, fyrirtækja og einstaklinga.
Þetta er í fimmta sinn sem úthlutað er úr sjóðnum. Í ár er sérstaklega hvatt til umsókna sem stuðla að því að minnka umhverfisáhrif jarðvarmavirkjana með nýtingu eða förgun á gastegundum og afrennsli.
Auglýst er eftir umsóknum um námsstyrki og verkefnastyrki:
Styrkir til nemenda í meistara- eða doktorsnámi
Styrkir til efnilegra nemenda sem áforma eða stunda meistara- eða doktorsnám á sviði umhverfis- eða orkumála.
Styrkir til rannsókna á sviði umhverfis- og orkumála
Almenn rannsóknarverkefni á sviði umhverfis- og orkumála. Styrkir eru veittir til hluta þess kostnaðar sem hlýst af vinnu sérfræðinga, þátttöku meistara- og doktorsnema, og öðrum útgjöldum.
Í þessari úthlutun eru í heild allt að 58 milljónir króna til ráðstöfunar, allt að 48 m.kr. til rannsóknarverkefna á sviði umhverfis- og orkumála, og allt að 15 m.kr. til styrkja fyrir 10 - 20 nemendur í meistara- og doktorsnámi.
Umsækjendur þurfa að leggja fram lýsingu á rannsóknarverkefni sínu og rökstuðning fyrir því að verkefnið tengist markmiðum sjóðsins.
Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skila rafrænt á netfang sjóðsins; orkurannsoknasjodur@lv.is
Fyrirspurnir má senda á netfangið orkurannsoknasjodur@lv.is.
Umsóknarfrestur er til 9. janúar 2012. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Styrkveitingar orkurannsóknarsjóðs Landsvirkjunar miða að því að gera fjárframlög Landsvirkjunar til rannsókna skilvirkari og sýnilegri auk þess að tryggja að þær rannsóknir sem sjóðurinn styrkir samrýmist umhverfisstefnu Landsvirkjunar.
Ítarefni og eyðublöð:
Úthlutunarreglur Orkurannsóknarsjóðs (pdf)
Umsókn um námsstyrk A flokkur (doc)
Umsókn um námsstyrk B flokkur (doc)

























