haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Ísland allt árið þróunarsjóður - kynningarfundur á Selfossi fimmtudaginn 24. nóvember kl. 12:30 - 13:30

21. nóvember 2011

 
Ísland allt árið þróunarsjóður - kynningarfundir um allt land
 
Ísland allt árið er þriggja ára verkefni sem ætlað er að styðja við lengingu ferðamannatímabilsins á Íslandi. Landsbankinn og iðnaðarráðuneytið hafa komið á fót þróunarsjóði til þess að styðja við átakið meðal annars með því að auka hæfni fyrirtækja tengdum ferðaþjónustu til að skapa upplifanir utan hefðbundins ferðamannatíma. Heildarframlag stofnenda sjóðsins á þessu ári og því næsta verður 70 milljónir króna.
 
Landsbankinn og Nýsköpunarmiðstöð f.h iðnaðarráðuneytis í samstarfi við aðra hagsmunaaðila halda opna kynningarfundi um land allt 21. til 24. nóvember næstkomandi.
 
Kynningarfundir verða allir haldnir frá kl. 12:30 - 13:30 á eftirfarandi dagsetningum og stöðum:
 
• 21. nóv: Egilsstaðir - Hótel Hérað
• 22. nóv: Akureyri - Borgir við Norðurslóð (anddyri)
• 22. nóv: Akranes - Gamla kaupfélagið
• 23. nóv: Reykjavík - Grand Hótel
• 24. nóv: Selfoss - Hótel Selfoss
• 24. nóv: Ísafjörður - Þróunarsetur Vestfjarða
 
Við hvetjum alla til þess að mæta og kynna sér sjóðinn nánar.
 

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.