haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Samfélagssjóður Landsbankans veitir umhverfisstyrki. Umsóknarfrestur til 21. nóvember

17. nóvember 2011

 
Samfélagssjóður Landsbankans veitir umhverfisstyrki í fyrsta sinn í ár og er umsóknarfrestur til 21. nóvember 2011. Bankinn mun á þessu ári veita fimm milljónum króna til að styrkja umhverfis- og náttúruvernd.
 
Styrkirnir eru annaðhvort 250 þús. krónur eða 500 þús. krónur og verða veittir fyrir verkefni á sviði umhverfis- og náttúrverndar.
 
» Verkefni á sviði náttúruverndar, t.a.m. skógrækt, landgræðsla og hreinsun landsvæða.
» Verkefni er tengjast rannsóknum á náttúrugæðum.
» Verkefni er styðja betra aðgengi fólks að náttúru landsins.
» Verkefni er nýtast til verndar landsvæðum, t.d. vegna ágangs búfénaðar eða ferðamanna.
» Verkefni er auka þekkingu og vitund almennings á umhverfismálum.
» Verkefni er hvetja til umhverfisvæns hátternis.
 
Sækja verður um styrkina sérstaklega og senda umsókn merkt: Umhverfisstyrkir, Landsbankinn, Austurstræti 11, 155 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til og með 21. nóvember 2011 (póststimpill gildir).
 
Samfélagssjóður Landsbankans hefur það hlutverk að veita styrki til verðugra verkefna. Veittir verða ferns konar styrkir á hverju ári. Í ár er þegar búið að veita námsstyrki og nýsköpunarstyrki. Fyrirhugað er að veita samfélagsstyrki í lok nóvember og umhverfisstyrki fyrir lok árs.
 
Markmið Landsbankans með því að veita umhverfisstyrki er í takti við stefnu bankans um samfélagslega ábyrgð. Landsbankinn ætlar að taka virkan þátt í að byggja upp sjálfbært samfélag þar sem efnahags-, samfélags- og umhverfismálum er fléttað saman við starfshætti bankans.
 

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.