Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fjölsótt Jarðvangsráðstefna á Hvolsvelli
15. nóvember 2011
Hátt í 80 manns mættu á Jarðvangsráðstefnu sem Atvinnuþróunarfélag Suðurlands, Háskólafélag Suðurland og Katla Geopark héldu fimmtudaginn 3. nóvember s.l. á Hótel Hvolsvelli. Ráðstefnan var liður í kynningarherferð Kötlu Geopark fyrir svæðið sem um ræðir. Umræðuefnið var fyrst og fremst hvaða tækifæri felast í því að vera orðin meðlimur í European and Global UNESCO Geopark network og hvernig best er að haga sér í að nýta þau sem best.
Friðrik Pálsson stjórnarformaður Íslandsstofu var ráðstefnustjóri og fyrstur á mælendaskrá var Sigurður Sigursveinsson framkvæmdastjóri Háskólafélags Suðurlands sem stiklaði á stóru yfir forsögu og tilgangs jarðvangsins. Í framhaldi ræddi Hrafnkell Guðnason verkefnastjóri hjá Háskólafélaginu þá möguleika sem felast í fræðandi ferðaþjónustu í jarðvangi og í fjarveru Gústafs Gústafssonar forstöðumanns Markaðsstofu Vestfjarðar fór Þuríður Árnadóttir í gegnum tækifæri í framleiðslu og ferðaþjónustu á viðurkenndum og eða verðlaunuðum svæðum.
Eftir kaffihlé talaði Steingerður Hreinsdóttir verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands um byggðaþróun svæðisins og Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur talaði um hvað það er sem gerir svæðið eins áhugavert og raun ber vitni.
Að auki var skemmtilegt innlegg frá Hvolskóla sem hefur nýtt sér hugmyndafræði jarðvanga til að þróa úti- og jarðfræðikennslu sem byggir á nærumhverfinu.
... í lok ráðstefnunnar var ráðstefnugestum boðið á opnun Safnahelgarinnar á Suðurlandi sem var haldin í Sögusetrinu á Hvolsvelli.
Sjá einnig: www.katlageopark.is

























