haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Styrkir úr þróunarsjóði námsgagna. Umsóknarfrestur er til 5. desember

08. nóvember 2011

 
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði námsgagna.
 
Hlutverk þróunarsjóðs námsgagna er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla í því markmiði að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla.
 
Forgangs nýtur efni sem stuðlar að því að efla starf í anda grunnþátta menntunar fyrir öll skólastigin í samræmi við aðalnámskrá.
 
Stefna sjóðsins er að námsefnið sem styrkt er, verði gefið út með rafrænum hætti og gert aðgengilegt á netinu, þegar við á.
 
Vakin er sérstök athygli á að umsóknir um styrki skulu vera á rafrænu formi. Sækja þarf um aðgang að umsóknavef ráðuneytisins. Aðgangur er gefinn á kennitölu og er lykilorð sent til viðkomandi á netfang sem gefið er upp við nýskráningu.
 
Umsóknarfrestur er til 5. desember 2011.
 
Nánari upplýsingar veitir Ásta María Reynisdóttir í síma 545 9500 eða í tölvupósti á asta.reynisdottir@mrn.is  
 

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.