Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Seðlabanki Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordal. Umsóknarfrestur til 1. desember
02. nóvember 2011
Auglýst er eftir umsóknum um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordal sem Seðlabanki Íslands veitir. Ákveðið var að veita styrkinn í tilefni af 50 ára afmæli Seðlabanka Íslands á árinu 2011. Tilgangur með styrknum er að styðja viðleitni einstaklinga sem miðar að því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf. Umsóknir skulu sendar skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands fyrir 1. desember 2011. Fjárhæð styrksins nemur 1.500.000 kr. og verður fjárhæðinni úthlutað í lok árs.
Nánari upplýsingar veitir Jón Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri á skrifstofu seðlabankastjóra.
Seðlabanki Íslands
Kalkofnsvegi 1
150 Reykjavík
Sími 569 9600

























