haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Matarsmiðju Matís á Flúðum - eitthvað fyrir þig? Gagnlegar upplýsingar.

10. október 2011

 
Matarsmiðja er það kallað þegar útbúin hefur verið aðstaða til fjölbreyttrar matvælavinnslu, sem hefur fengið leyfi þar tilbærra yfirvalda til rekstursins.
 
Aðstaðan getur verið mismunandi frá einni smiðju til annarar, en sammerkt með þeim öllum er að til staðar er fjölbreytt úrval matvinnslutækja og áhalda og önnur aðstaða sem vinnslan krefst. Notendur fá kennslu á tækin og frjálsan aðgang til framleiðslu á þeim vörum sem gerlegt er m.t.t. aðstöðu og tækjabúnaðar og útgefnu leyfi heilbrigðisyfirvalda.
 
Í matarsmiðjunum eru reglulega haldin námskeið um framleiðslu og verkun ýmissa framleiðsluvara auk námskeiða um innra eftirlit. Matarsmiðjur Matís eru á Flúðum og á Höfn í Hornafirði.
 
Nánari upplýsingar um Matarsmiðjuna á Flúðum má finna í nýjum bæklingi hér.
 
Nánari upplýsingar um starfsstöðvar og Matarsmiðjur Matís má finna hér.
 
 

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.