haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Hugur í ferðaþjónustunni í Eyjum. Frétt, glærur og myndir

28. september 2011

 
Það eru mörg sóknarfæri í ferðaþjónustu í Eyjum að mati þeirra sem sátu kynningar- og upphafsfund í verkefninu „Áfangastaðurinn Vestmannaeyjar“ í síðustu viku. Vestmannaeyjabær býður ferðaþjónustuaðilum samstarf í klasa sem mun vinna að því næsta 1 ½ ár að marka stefnu um þróun ferðaþjónustu í Eyjum. Um 50 manns voru á fundinum, sem hófst með því að Hrafn Sævaldsson hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands sagði frá tilurð verkefnisins. Í ávarpi sínu sagði Elliði Vignisson bæjarstjóri m.a. þetta: „Bylting í samgöngum og aukin geta bæjarfélagsins hefur gjörbreytt stöðu Eyjanna hvað ferðaþjónustu varðar og það er skoðun mín að Vestmannannaeyjar séu í dag frjóasti jarðvegur íslenskrar ferðaþjónustu. Tækifærin eru því mikil, innviðirnir sterkir og viljinn er til staðar.“
 
Verkefnisstjórinn Sigurborg Kr. Hannesdóttir hjá ráðgjafarfyrirtækinu ILDI, fjallaði um verkefnið og hvernig það verður unnið. Lögð verður áhersla á almenna þátttöku í vinnufundum, sem skiptir jafnvel meira máli en fjárframlag þeirra sem verða með í klasanum. Stefnt er m.a. að því að láta gera markaðskönnun til að vita betur hverjir sækja Vestmannaeyjar heim og hvernig ferðaþjónustan í Eyjum mætir væntingum þeirra.
Eftir kynningar og ávörp ræddu fundargestir saman út frá spurningunni: „Áfangastaðurinn Vestmannaeyjar – hver eru tækifærin?“ Urðu miklar og líflegar umræður og grípum við nú hér niður í helstu niðurstöður þeirra.
 
Mikilvægt er að lengja dvöl ferðamanna í Eyjum, sem kallar á vöruþróun, til dæmis ævintýra-, heilsu- og „action“ ferðir, eins og hellaskoðun, sig, sjóstöng, lundaskoðun, kvöldsiglingar, norðurljós, golf, hlaup og fjallgöngu, eða menningarviðburði eins og tónlist, myndlist og leikhús. Ferðir og viðburðir á kvöldin myndu kalla á gistingu og þar með fá gesti til að stoppa lengur.
 
Fram komu ýmsar fleiri hugmyndir sem tengjast sögu og menningu, s.s. að vinna meira með gosið 1973, sögu þeirra sem upplifðu það og að hægt væri að skoða gamla bæinn í tölvu. Bjóða mætti upp á styttri fyrirlestra um tiltekin efni sem tengjast sérstöðu Vestmannaeyja. Þá mætti hafa einn aðgöngumiða fyrir öll söfnin og gætu gestir jafnvel farið á sama safnið aftur.
 
Markaðssetning og upplýsingagjöf fékk talsvert vægi í umræðunum og var bent á mikilvægi þess að þekkja og skilgreina markhópana. Liður í markaðssetningu væri að setja auglýsingaskilti við þjóðveg 1. Bæta þyrfti upplýsingagjöf með skiltum og merkingum í bænum, hafa gott grunnkort sem hentaði til að hjálpa ferðamönnum að skipuleggja dvöl og ferðir eftir eigin áhuga. Hægt væri að selja hljóðskrár sem tengjast sérstöðu Eyja, en það er valkostur sem á stöðugt meiri vinsældum að fagna. Þá þarf að bæta göngustíga á helstu stöðum og merkja, sögðu fundarmenn.
 
Komið var inn á skemmtiferðaskipin og að stíla mætti inn á efnaferðamenn og selja dýrar ferðir í úteyjar.
 
Rætt var um tækifæri í matarmenningu og að nýta nálægðina við gott hráefni – og virðast margir eiga sér draum um góðan fiskveitingastað í Eyjum. Bryggjan býður upp á spennandi tækifæri sem miðpunktur í ferðaþjónustunni, þar kemur meirihluti þeirra sem sækja Vestmannaeyjar heim og öll aðstaða þarf að vera góð.
 
Margir lögðu áherslu á bættar samgöngur til og frá Eyjum og var bent á þann möguleika að Eimskip og Ernir byggju til sameiginlegar pakkaferðir.
 
Hægt er að draga meginskilaboð fundarins saman í setningu sem einn umræðuhópur skilaði sem niðurstöðu: „Bæta þarf þjónustu sem er til staðar og það til frambúðar“ – og þegar við bætist áhersla á vöruþróun og nýsköpun og góður samstarfsvilji, ætti ferðaþjónustunni í Vestmannaeyjum að vera allir vegir færir.
 
Margir hafa þegar gengið í klasann og verða næstu fundir haldnir 20. október og 17. nóvember.
 
Í lok fundarins voru þátttakendur beðnir um að segja í þremur orðum hvað þau töldu að þyrfti til að ná árangri í verkefninu. Þar hljómuðu oftast þessi þrjú orð: Samvinna, jákvæðni og bjartsýni!
 
Glærur verkefnisstjóra af fundinum má nálgast hér
 
 
 Þátttakendur koma hugmyndum sínum á blað
 
Elliði Vignisson bæjarstjóri í Vestmannaeyjum
 
World Café stemming og málin rædd
 
Hugmyndir ræddar og kortlagðar
 
Í lokin.  Til að ná árangri í vrerkefninu:  Samvinna, jákvæðni og bjartsýni
 

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.