haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Svanni lánatryggingasjóður kvenna tekur til starfa. Umsóknarfrestur er til og með 19. október

26. september 2011

 
Þann 8. mars sl. var undirritað samkomulag um endurreisn Lánatryggingasjóðs kvenna, er var starfræktur á árunum 1998-2003. Verkefnið er liður í viðleitni stjórnvalda til að efla atvinnulíf og hvetja til nýsköpunar á Íslandi. Ennfremur hafa rannsóknir sýnt að konur eru síður tilbúnar að veðsetja eignir sínar en karlar og hefur það oft staðið verkefnum kvenna fyrir þrifum.
 

 
Sjóðurinn, sem hefur hlotið nafnið Svanni, er í eigu velferðarráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og Reykjavíkurborgar og er verkefnið til fjögurra ára og lýkur þann 31.desember 2014.
 
Stjórn sjóðsins skipa þau Steinunn Valdís Óskarsdóttir sem jafnframt er formaður stjórnar og fulltrúi velferðarráðherra, Jón Steindór Valdimarsson sem er fulltrúi iðnaðarráðherra og Sigrún Elsa Smáradóttir fulltrúi Reykjavíkurborgar. Svanni verður formlega settur á laggirnar næstkomandi föstudag með blaðamannafundi í Víkinni - Sjóminjasafni en þá verður heimasíða verkefnisins opnuð og skrifað undir samstarfssamning við Landsbankann.
 
Hægt verður að sækja um lánatryggingar á heimasíðunni frá og með föstudeginum 23.september og er umsóknarfrestur til og með 19.október í þessari fyrstu umsóknarlotu.
 
Hvað er Svanni?
Svanni - lánatryggingasjóður veitir lánatryggingar til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir og er í samstarfi við Landsbankann um lánafyrirgreiðslu. Sjóðurinn veitir helming ábyrgðar á móti banka.
 
Eingöngu verkefni/fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um tryggingu og gerð er krafa um að í verkefninu felist nýsköpun/nýnæmi að einhverju marki. Einnig er krafa um að líkur séu verulegar á að verkefnið/fyrirtækið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna.
 
Hægt er að sækja um lánatryggingu vegna eftirtalinna þátta:
  • Stofnkostnaðar
  • Markaðskostnaðar
  • Vöruþróunar
  • Nýrra leiða í framleiðslu eða framsetningu vöru/þjónustu.
 
Lánsfjárhæðir skulu ekki vera undir tveimur milljónum króna og að jafnaði skal ekki afgreiða lán yfir 10 milljónir króna en stjórn er þó heimilt að gera undantekningar með hliðsjón af eðli og tegund umsókna.
 
Hvernig á að sækja um?
Sótt er um á heimasíðu verkefnisins www.svanni.is og eru umsóknir rafrænar. Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um umsækjanda, greinargóð lýsing á verkefni/fyrirtæki, markmiðum þess og ávinningi, hverjir koma að umsókninni, samstarfsaðilar, viðskiptaáætlun (ítarleg fjárhags-, og framkvæmdaráætlun) og lýsing á fjármögnun og staðfesting fjármögnunaraðila ef þeir eru til staðar.
 
Umsóknir eru metnar út frá eftirfarandi þáttum: Lýsingu á viðskiptahugmynd, nýnæmi/nýsköpun hugmyndar, atvinnusköpun kvenna, verðmætasköpun/arðsemi, samkeppni, viðskiptaáætlun (fjárhags-, markaðs og framkvæmdaráætlun), fjármögnun, áhættumati og fjárhagsstöðu umsækjanda.
 
Ráðgjöf og eftirfylgni
Mikilvægur þáttur verkefnisins er ráðgjöf og handleiðsla en er lán og ábyrgð er samþykkt fer af stað ferli handleiðslu og ráðgjafar. Þannig skuldbindur lántaki sig til að fá ráðgjöf/handleiðslu um útfærslu hugmyndar sinnar. Ennfremur skal lántaki skila ársskýrslu verkefnis/fyrirtækis fyrir lok apríl hvert ár sem ábyrgðin er í gildi.
 
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Guðmundsdóttir, starfsmaður sjóðsins í síma 582-4914 og í netfangið svanni@svanni.is
 
 
 

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.