Samfélagssjóður Landsbanka Íslands. Umsókanrfrestur til 1. október 2011
19. september 2011
Samfélagssjóður Landsbankans hefur það hlutverk að veita styrki til verðugra verkefna. Veittir verða ferns konar styrkir á hverju ári: námsstyrkir, samfélagsstyrkir, nýsköpunar- og sprotastyrkir og umhverfisstyrkir. Dómnefndir eru skipaðar fagfólki á hverju sviði.
Beinn stuðningur við samfélagið er liður í stefnu bankans um samfélagslega ábyrgð. Stuðningur úr samfélagssjóði kemur til viðbótar við fjölbreytt samstarfsverkefni bankans á sviði mannúðarmála, menningar og íþrótta um land allt.
Námsstyrkir
Fyrsta úthlutun úr Samfélagssjóði var 3. júní sl. en þá hlutu sextán framúrskarandi námsmenn námsstyrki frá Landsbankanum. Námsstyrkir voru auglýstir í mars og bárust um 1.000 umsóknir.
Í dómnefnd sátu þrír fulltrúar frá bankanum en þrír fagaðilar utan bankans.
Samfélagsstyrkir
Samfélagssjóður mun veita 35 samfélagsstyrki til mannúðar-, menningar- og menntamála samtals að upphæð 15.000.000 kr. Umsóknarfrestur hefur verið lengdur til og með 1. október 2011. Skipting styrkja er með eftirfarandi hætti en getur breyst í meðförum dómnefndar.
- 5 styrkir að upphæð 1.000.000 kr. hver.
- 10 styrkir að upphæð 500.000 kr. hver
- 20 styrkir að upphæð 250.000 kr. hver.
Verkefni sem einkum koma til greina eru:
- verkefni mannúðarsamtaka og líknarfélaga
- verkefni á sviði menningar og lista
- menntamál, rannsóknir og vísindi
- forvarnar- og æskulýðsstarf
- sértæk útgáfustarfsemi
Forsendur
- Allir sem sækja um verða að gera grein fyrir verkefninu á sérstöku umsóknarblaði.
- Umsækjendur verða að leggja fram lýsingu á því hvernig styrk verði varið.
- Almennt verða verkefni ekki styrkt sem eru ætluð á almennan markað eða fela í sér hagnaðarvon.
- Hægt er að óska eftir stuttri lokaskýrslu um nýtingu á fjárstyrk.
- Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
- Úthlutun verður kynnt opinberlega í september eða október.
Sækja um
- Sækja verður um styrkina sérstaklega og senda umsókn merkt: Samfélagsstyrkir, Landsbankinn, Austurstræti 11, 155 Reykjavík.
- Nauðsynlegt er að fylla út sérstakt umsóknarblað og láta það fylgja fremst með öðrum gögnum.
- Umsækjendur eru hvattir til að senda öll þau gögn sem geta komið að gagni við mat á umsóknum.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur vegna samfélagsstyrkja hefur verið framlengdur til og með 1. október 2011 (póststimpill gildir).

























