Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Vaxtarsamningur Suðurlands. Styrkir til eflingar nýsköpunar og samkeppnishæfni atvinnulífsins á Suðurlandi. Umsóknafrestur er til og með 4. október
12. september 2011
Vaxtarsamningur Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrk til uppbyggingar klasa og framgang rannsóknar og þróunar á sviði matvæla, ferðaþjónustu og iðnaðar á Suðurlandi. Starfsvæði Vaxtarsamnings Suðurlands markast af Hellisheiði í vestri og eystri mörkum Sveitarfélagsins Hornafjörður.
Óskað er eftir umsóknum frá klösum (í það minnsta þrjú fyrirtæki) sem tengjast nýsköpun með skýrri verðmætasköpun. Í þessari úthlutun er sérstök áhersla lögð á sunnlenska smáframleiðslu og hönnun. Gerð er krafa til þess að verkefnin styðji atvinnulíf og samfélag á Suðurlandi.
Í boði eru 15 milljónir. Mótframlag verkefnisins þarf að vera 50% hið minnsta. Verkefni þar sem fyrirtækin, rannsóknar – þróunar og háskólastofnanir vinna saman njóta alla jafna forgangs. Að auki verður horft til þess að verkefnin skili ábata og störfum út í samfélagið á verkefnatímanum.
Í umsókninni á að koma fram lýsing á verkefninu, skýr útlistun á nýnæmi hugmyndarinnar og ætluðum ávinningi ásamt kostnaðar- fjármögnunar- og tímaáætlun. Ekki er veittur styrkur til fjárfestinga.
Rafræn umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur má finna á vef Atvinnuþróunarfélags Suðurlands www.sudur.is.
Umsóknafrestur er til og með 4. október 2011
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands www.sudur.is í síma 4808210 og 4812961

























