Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Geotourism - jarðminjaferðamennska. Fyrirlestur 29. ágúst
16. ágúst 2011
Jarðminjaferðamennska er skilgreind sem ferðaþjónusta sem byggir á sérstæðri jarðfræði og nýtur stöðugt meiri vinsælla á heimsvísu. Einn virtasti sérfræðingur heims á þessu sviði, dr. Ross Dowling, heldur opinberan fyrirlestur á vegum Háskólafélags Suðurlands og Kötlu Jarðvangs í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins mánudaginn 29. ágúst kl. 15-17.
Vikuna 21. – 28. ágúst verður dr. Ross Dowling aðalkennari á meistaranámskeiði í Háskóla Íslands um þetta efni með sérstakri áherslu á jarðvanga (Geoparks).
Skráning er hafin á fyrirlesturinn þann 29. ágúst á netfanginu hrafnkell@hfsu.is . Verð er kr. 7.500 og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Nánari upplýsingar um fyrirlesturinn og Ross Dowling er að finna á heimasíðu Kötlu jarðvangs www.katlageopark.is
Háskóli Íslands
Háskólafélag Suðurlands
Katla Geopark project

























