haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Nýr starfsmaður Atvinnuþróunarfélags Suðurlands

09. ágúst 2011

Atvinnuþróunarfélag Suðurlands hefur ráðið Bjarna Hlyn Ásbjörnsson sem verkefnastjóra og ráðgjafa frá 15. ágúst n.k.  Bjarni er MS í stjórnun og stefnumótun frá HÍ og BS í tölvunarfræði með viðskiptavali frá HR. Hann hefur m.a. unnið hjá O.K Hull ehf., O.K. Prosthetics ehf. og Sláturfélagi Suðurlands. Bjarni er búsettur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, giftur og á þrjá syni.
 
Fjórir starfsmenn starfa hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands sem er með höfuðstöðvar á Selfossi og starfsstöð í Vestmannaeyjum.  Starfssvæði félagsins nær yfir Suðurland frá Lómagnúp í austri að Hellisheiði í vestri ásamt Vestmannaeyjum.
 
Markmið félagsins er að efla og örva atvinnulíf á Suðurlandi með ráðgjöf og styrkjum til einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka, sveitarfélaga og annarra hagsmunaaðila. Félagið er einnig umsjónaraðili með Vaxtarsamningi Suðurlands.
 

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.