Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands óskar eftir að ráða verkefnastjóra/ráðgjafa
15. júní 2011
Hlutverk Atvinnuþróunarfélags Suðurlands er að styðja við verkefni sem leiða til eflingar atvinnulífs á Suðurlandi. Starfssvæði félagsins nær frá Lómagnúpi í austri að Hellisheiði í vestri. Til að rækta hlutverk sitt veitir félagið ráðgjöf og fjárhagslega styrki til áhugaverðra verkefna. Félagið leggur áherslu á hraða, gæði og vönduð vinnubrögð við úrlausn verkefna. Félagið vinnur í nánu samstarfi við einstaklinga, fyrirtæki, önnur innlend atvinnuþróunarfélög, opinbera aðila og erlenda aðila á sviði byggðaþróunar.
Starfssvið:
- Samstarf með fyrirtækjum, einstaklingum og sveitarfélögum að atvinnuþróun og nýsköpun á starfsvæðinu
- Gerð rekstrar– og viðskiptaáætlana.
- Almennar úttektir, aðstoð og endurskipulagning á rekstri fyrirtækja.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði viðskipta–, og/eða hagfræði.
- Góð þekking innsæi og áhugi á atvinnu– og efnahagslífi á landsbyggðinni.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Færni í ræðu og riti.
- Frumkvæði, sjálfstæði, framsýni og metnaður.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. ágúst n.k.
Umsóknarfrestur er til og með 30. júní 2011 og skal umsóknum með upplýsingum um starfsferil og menntun skilað til Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Austurvegi 56, 800 Selfossi eða að senda þær á netfangið iva@sudur.is Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða. Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar veitir Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélagsins í síma 480-8210 eða iva@sudur.is
Bæði konur og karlar eru hvött til þess að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um starfsemi félagsins er að finna á www.sudur.is

























