Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Sjáfbærir vöruflutningar- opið fyrir umsóknir. Umsóknafrestur er til 15. september.
23. maí 2011
Orku- og samgönguáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar hefur opnað kall til umsókna á sviði sjálfbærra vöruflutninga (sustainable freight transportation). Flutningar í þessu samhengi eru vöruflutningar fara fram á landi eða sjó. Sjálfbærni í þessu kalli er skilgreind sem endurnýjanlegir orkugjafar og orkunýting. Kallið nær yfir tækni á mjög breiðu sviði. Áhugaverð þemu eru birgðastýring (logistics), vörudreifing í borgum, samþættingu, borgarskipulag, opinber innkaup, innvið og nýjar viðskiptalausnir. Kallið nær til vöruflutninga í lengri og styttri vegalengdir.
Þemun eru:
- Tæknilegir þættir
- Stefnumótun og innviðir
- Markaðsþróun
Fjármögnunarleiðir eru:
- Greining og rannsóknir
- Prófanir og framkvæmd flutninga- og orkulausna
- Tengslanet
Verkefnin skulu hafa norrænt sjónarhorn og skilyrði er að þátttakendur í verkefninu séu frá amk þremur norrænum löndum. Þáttakendur geta verið fyrirtæki, stofnanir og háskólar.
Heildarfjármagn í þessu kalli eru 10 milljónir norskra króna. Umsóknafrestur er til 15. september.
Tilkynningin í heild sinni og nánari upplýsingar eru á: www.energyandtransport.net

























