haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Námskeið í markaðssetningu á netinu á Suðurlandi. 5.-6. maí næstkomandi á Hótel Selfossi.

27. apríl 2011

 
194.000 Íslendingar eru komnir á Facebook
 
600 milljón Facebook notendur um allan heim
 
YouTube er orðin önnur stærsta leitarvél í heimi
 
160 milljón twitter notendur
 
5 milljarðar ljósmynda á Flickr
 
Samfélagsmiðlarnir eru orðnir vinsælli en KLÁM!
 
Ef samfélagsmiðlarnir geta bylt ríkisstjórnum - ímyndaðu þér þá hvað áhrif þeir geta haft á vörumerkið þitt!
 
Markaðsstofa Suðurlands kynnir tveggja daga námskeið í markaðssetningu á netinu dagana 5.-6. maí næstkomandi á Hótel Selfossi. Námskeiðið er hugsað fyrir alla þá sem hafa með markaðssetningu að gera, markaðsstjóra, vefstjóra, framkvæmdastjóra, frumkvöðla og aðra áhugasama.
 
Á námskeiðinu er farið í alla helstu þætti við markaðssetningu á netinu, hvernig byggja eigi upp vefsíðu sem selur, hvernig leitarvélar virka, hvaða tækifæri YouTube og Flickr bjóða upp á, hvernig hægt sé að nota Facebook, twitter og aðra samfélagsmiðla og fleira. Á námskeiðinu öðlast þátttakendur innsýn inn í nýjustu aðferðir og áherslur í markaðssetningu á netinu og læra aðferðir sem þeir geta strax beitt til þess að bæta árangur sinn á netinu.
 
Hjörtur Smárason hefur starfað við markaðssetningu á netinu frá 1997 og unnið fyrir fjölda fyrirtækja og stofnana, ferðamálaráð í Evrópu og fleiri. Hjörtur heldur reglulega námskeið og fyrirlestra í háskólum og ráðstefnum víða um heim. Hjörtur er einn af stofnendum IfTheWorldCouldVote.com sem fékk heimsathygli í forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2008 og hann og fjölskylda hans unnu netsamkeppnina "The Greatest Holiday in the World" sem haldin var sumarið 2010. Hann er í dag nr. 4 á lista yfir áhrifamesta markaðsfólkið á netinu í ferðabransanum.
 
"Mæli hiklaust með þessu við alla sem þurfa á Internetmiðlum að halda við sína markaðssetningu." Sigrún Lára Hauksdóttir, Hótel Heklu
 
Gríptu tækifærið!
 
Fullt verð fyrir tveggja daga námskeið er 65.000 kr. en það býðst fyrirtækjum á Suðurlandi nú á einungis 39.000 kr!
 
Nánari upplýsingar um dagskrá námskeiðisins og skráningu er hér:
 
 
Náðu árangri á netinu - námskeið í markaðssetningu á netinu

Hótel Selfoss - 5.-6. maí 2011.

Kennt er frá 9-16 báða dagana. Léttar kaffiveitingar eru innifaldar í verði auk vinnubókar.
 
 

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.