haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

6 verkefni hlutu styrk frá Vaxtarsamningi Suðurlands

27. apríl 2011

 
Í mars 2011 auglýsti Vaxtarsamningur Suðurlands eftir umsóknum vegna styrkja til uppbyggingar klasa og framgang rannsóknar og þróunar á sviði matvæla, ferðaþjónustu og iðnaðar á Suðurland.
 
Starfsvæði Vaxtarsamnings Suðurlands markast af Hellisheiði í vestri og eystri mörkum Sveitarfélagsins Hornafjörður.
 
Óskað var eftir umsóknum frá klösum og/eða samstarfsverkefnum sem tengjast nýsköpun með skýrri verðmætasköpun. Gerð var krafa til þess að verkefnin myndu styðja atvinnulíf og samfélag á Suðurlandi.
 
Í boði voru 20 milljónir. Mótframlag verkefnisins þurfti að vera 50% hið minnsta. Verkefni þar sem fyrirtæki, rannsóknar – þróunar og háskólastofnanir vinna saman nutu alla jafna forgangs. Að auki var horft til þess að verkefnin myndu skila ábata og störfum út í samfélagið á verkefnatímanum.
 
Í umsókn þurfti að koma fram lýsing á verkefninu, skýr útlistun á nýnæmi hugmyndarinnar og ætluðum ávinningi ásamt kostnaðar- fjármögnunar- og tímaáætlun. Ekki er veittur styrkur til fjárfestinga.
 
Rafræn umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur má finna á vef Atvinnuþróunarfélags Suðurlands www.sudur.is
 
Umsóknafrestur var til og með 11. október 2010
 
Alls bárust 10 umsóknir og var heildarupphæð styrkbeiðna tæplega 40 mkr.
 
Á fundi verkefnisstjórnar samningsins þann 18. apríl 2011, var tekin ákvörðun um að styrkja 6 verkefni af þeim 17 sem sent höfðu inn umsókn. Heildarupphæð úthlutaðra styrkja var 14.300.000 kr.
 
Eftirtalin verkefni hlutu styrk:
 
1) Þróun á þurrfóðri og fóðrurum fyrir japönsk sæbjúgu: 5.000.000 kr.
 
2) Uppbygging ferðaþjónustu í Þorlákshöfn: 800.000 kr.
 
3) Mýrdalurinn í sókn: 2.000.000 kr.
 
4) Þekkingarsetur á Kirkjubæjarklaustri: 1.500.000 kr.
 
5) Áfangastaðurinn Vestmannaeyjar:  4.000.000 kr.
 
6) Menningarleg fjársjóðsleit: 1.000.000 kr.
 
 
 

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.