haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Tækifæri atvinnulífs í ferðaþjónustu, handverki, listiðnaði og hönnun. Glærur og myndir

14. apríl 2011

 
Samstarfsverkefni Atvinnuþróunarfélag Suðurlands, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Frétta
 
Margt áhugavert að gerast - Markmiðið að stuðla að nýsköpun á hinum ýmsu sviðum atvinnulífsins

Frosti Gíslason hjá Nýsköpunar­mið­stöð Íslands sagðist vera ákaf­lega ánægður með þátttökuna á hádegisfundi á föstudag og á vinnu­fundum um helgina í kjölfarið. Yfirskrift þeirra var tækifæri atvinnulífsins í ferðaþjónustu, handverki, listiðnaði og hönnun.

 „Við renndum blint í sjóinn með þetta, vorum hrædd um að ekki fengist nægileg þátttaka vegna ferm­inganna og þess háttar en svo kom í ljós að margir eru að vinna áhugaverða hluti hér og hafa áhuga að koma þeim á framfæri,“ sagði Frosti um fundina.

„Við erum ánægð með að fá fag­fólk á mismunandi sviðum til þess að koma til okkar og kynna fyrir okkur góða starfshætti í sinni grein. Það tókst svo sannarlega að þessu sinni enda fengum við til okkar gott fólk sem ekki bara hefur þekkingu á faginu heldur ber einnig hlýjan hug til Eyjanna og þess sem verið er að gera hér. Sunneva, Guðný og Margrét stóðu sig með mikilli prýði og sýndu fram á mikilvægi þess að kynna vörurnar rétt, stilla þeim fram og verðleggja þær rétt.“

Frosti sagði að þeirra markmið hefði verið að stuðla að nýsköpun á hinum ýmsu sviðum atvinnulífsins og voru þessir vinnufundir liður í því. „Á vinnufundunum voru greindir styrkleikar, veikleikar, ógn­anir og hin fjölmörgu tækifæri sem eru í þessari grein. Það kom fram að vannýtt tækifæri leynast víða og vonandi verða þau nýtt í kjölfarið. Þá hefur hópurinn sem kom á vinnu­fundina stefnt að því að hittast og vinna að sameiginlegum markmiðum. Næstu skref eru undir fólkinu komin, fleira fólk má gjarn­an láta sjá sig af þeim sem eru í þessum geira en ætlunin er að hittast næst þann 2. maí klukkan 18:00 í Fab Lab smiðju Nýsköpun­ar­miðstöðvar að Bárustíg 1.“

Frosti telur samstarfið við At­vinnuþróunarfélagið og Fréttir hafa gengið vel. ,,Mikilvægt er að eiga samstarf við marga aðila til þess að hlutirnir gangi upp og ég er ánægður með samstarfið við Atvinnuþróunarfélagið og Fréttir, Hrafn hefur sent út pósta til fjölda manns og Fréttir hafa greint vel frá þessum fundum um tækifæri at­vinnulífsins svo þeir hafa vakið verðskuldaða athygli.

Nú á næstunni munum við stuðla að nýsköpun á fleiri sviðum at­vinnulífsins og verður það kynnt á næstunni,“ sagði Frosti og bætti við: „Tækifærin leynast víða og við þurf­um að grípa þau á þessum tímum sem og öðrum.“

Sjá nánar í vikublaðinu Fréttum.

Glærur Sunneva Hafsteinsdóttir 1

Glærur Sunneva Hafsteinsdóttir 2

Glærur Margrét Guðnadóttir

Glærur Guðný Hafsteinsdóttir

 

 Hægt er að smella á myndir til að stækka þær

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.