Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
5 mkr. úthlutun AÞS. Styrkir til atvinnuþróunar. 18 verkefni fengu styrki
13. apríl 2011
Á fundi sínum þann 4. apríl sl. úthlutaði stjórn Atvinnuþróunarfélags Suðurlands 5 milljónum í styrki til atvinnuþróunar á starfssvæði sínu en auglýst var eftir umsóknum um styrki í febrúar. Alls bárust 37 umsóknir til félagsins að þessu sinni og óskað var eftir 58,3 milljónum í framlag. Hæsta styrkbeiðnin hljóðaði upp á 34,5 milljónir en sú lægsta upp á 200 þúsund krónur.
Til úthlutunar voru 5 milljónir og að þessu sinni voru 18 verkefni styrkt en þau eru eftirtalin:
Arnór Gauti Helgason - Staðbundinn matur í Árnesi - 350.000
Ársæll og Þorgerður - Markaðssetning - 290.000
Gallerí Laugarvatn - Markaðssetning - 150.000
Grænna land ehf. - Hönnun og markaðssetning - 300.000
Guðbjörg og Gauti - Hönnun og vöruþróun heimavinnslu - 350.000
Guðmundur Viðarsson - Markaðssetning - 285.000
Handverksskúrinn - Markaðssetning - 200.000
Heiða Björg Scheving - Gamla fjósið – markaðssetning - 290.000
Hjördís Rut Jónsdóttir - Ísgerð - 350.000
Hólaborg - Skoðunarferðir í hátæknihesthús - 300.000
Kálfholt hestaferðir ehf. - Kynningarefni og markaðssetning - 350.000
Kristbjörg Hilmarsdóttir - Þykkvabæjarklaustur 2 - 300.000
Margrét Birgisdóttir Hótel Katla - markaðssetning - 350.000
Offroad Iceland ehf. - Markaðssetning - 300.000
Ólafur Þ. Gunnarsson - Markaðssetning - 200.000
Sólstaðir ehf. - Laugarvatn Adventure - 125.000
Svandís Guðmundsdóttir - Brjóstsykursgerð - 230.000
Vinnslustöð Vestmannaeyja - Blettavörn karfaflaka - 280.000
Atvinnuþróunarfélagið þakkar öllum sem sendu inn umsóknir og óskar styrkþegum velfarnaðar með verkefnin sín.

























