Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Tækifæri atvinnulífsins: Handverk, listiðnaður og hönnun. 8. og 9. apríl í Vestmannaeyjum
05. apríl 2011
Föstudaginn 8.apríl verður haldinn fundur á Kaffi Kró kl:12:05-12:55 um tækifæri atvinnulífsins varðandi handverk,listiðnað og hönnun, tækifæri í atvinnusköpun og ferðaþjónustu.
Súpa, brauð og kaffi verður selt á 1200 kr.
Fræðslu- og vinnufundir, föstudag og laugardag
Í kjölfar hádegis-fundarins verða haldnir fræðslu- og vinnufundir á vegum Atvinnuþróunarfélags Suðurlands og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í Fab Lab smiðju Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á föstudegi og laugardegi til þess að vinna nánar í samstarfi við heimafólk varðandi tækifæri í atvinnusköpun og ferðaþjónustu með handverki, listiðnaði og hönnun.
Föstudag 8.apríl frá kl:13:30-16:30 og laugardag 9.apríl frá 10:00-16:00 með hléum.
Þátttaka kostar 3000 kr.
Fundirnir verða leiddir áfram af Sunnevu Hafsteinsdóttir framkvæmdastjóra HANDVERKS OG HÖNNUNAR , Margréti Guðnadóttur, listiðnaðarmanni og Guðnýju Hafsteinsdóttur, leirlistamanni.
Áhugasamir hafi samband við Hrafn hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands hrafn@sudur.is , 481 2961 eða Frosta hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, frosti@nmi.is , 481 3355.

























