Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Tækifæri í fiskeldi á Suðurlandi. Mjög góð þátttaka. Glærur af fundi
31. mars 2011
Í gær, miðvikudaginn 30. mars var haldinn fundur á Hótel Heklu sem bar yfirskriftina tækifæri í fiskeldi á Suðurlandi. Fundurinn er hluti af 10 funda röð Atvinnuþróunarfélags Suðurlands (AÞS) um tækifæri í ýmsum atvinnuvegum á Suðurlandi. Samstarfsaðilar AÞS á fundinum voru Landsamband fiskeldisstöðva og Sjávarútvegsþjónustan.
Góð þátttaka var á fundinum, en 35 manns mættu á fundinn. Fundarefnið var almenn umfjöllun um fiskeldi – sagan og tölurnar, möguleikar í rekstri fiskeldisfyrirtækja á Suðurlandi, nám / þekking , stuðningur og stoðkerfið, aðstæður á Suðurlandi, styrkir, sjóðir, aðgengi að seiðum, umhverfismat, hönnun og skipulag fiskeldisstöðva, fiskeldisklasar og ýmsir samstarfsmöguleikar.
Framsögumenn á fundinum voru þeir Guðbergur Rúnarsson, framkvæmdastjóri Landssamtaka fiskeldisstöðva og Valdimar Ingi Gunnarsson, sjávarútvegsfræðingur hjá Sjávarútvegsþjónustunni og fluttur þeir mjög áhugaverð erindi um fiskeldi, mikil áhersla var á bleikjueldi í erindum þeirra. Töldu þeir bleikjueldi henta mjög vel sunnlenskum aðstæðum.
Í lok fundarins sköpuðust góðar umræður um undirbúning að stofnun klasa fyrirtækja í fiskeldi á Suðurlandi. AÞS mun í framhaldinu kanna möguleika og grundvöll klasasamstarfs meðal áhugasamra aðila og leiða þá vinnu í upphafi. Áhugasamir aðilar geta haft samband við Hrafn Sævaldsson, ráðgjafa og verkefnisstjóra, hjá AÞS hrafn@sudur.is varðandi málið.
Mynd: Valdimar Ingi Gunnarsson
Smellið á mynd til að stækka

























