Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
350 manns mættu á fund um samgöngumál í Vestmannaeyjum - glærur og myndir af fundi
28. mars 2011
Um 350 manns sóttu fund um samgöngumál í Höllinni í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 16. mars s.l.
Fundarboðendur voru Atvinnuþróunarfélag Suðurlands, Vestmannaeyjabær, Eimskip, Siglingastofnun, Sterna, Vegagerðin og Flugfélagið Ernir. Framsögumenn komu frá Siglingastofnun, Eimskip, Sterna, Flugfélaginu Erni auk þess sem fulltrúi Vegagerðarinnar svaraði fyrirspurnum.
Fundarstjóri var Páley Borgþórsdóttir, formaður bæjarráðs Vestmannaeyjabæjar
Eftir framsögur var tekið við fyrirspurnum fundargesta en fyrirspurnirnar voru fjölmargar og fjölbreyttar. Ekki var annað að heyra en að fundargestir væru ánægðir með þær upplýsingar sem fengust á fundinum, þótt hann hefði ekki breytt neinu varðandi erfiðar samgöngur við Vestmannaeyjar.
Fundurinn stóð yfir í um 2 klukkustundir
Glærukynningar af fundi eru hér að neðan
Siglingastofnun – Sigurður Viggósson og Sigurður Áss Grétarsson
Eimskip – Guðmundur Nikulásson
Sterna – Óskar Stefánsson
Myndirnar hér að neðan tók Óskar Pétur Friðriksson






























