haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

NATA auglýsir eftir styrkumsóknum. Umsóknarfrestur til 4. september.

16. ágúst 2010

 
Auglýst hefur verið eftir umsóknum í styrki frá NATA, North Atlantic Tourist Association. Um er að ræða samning Íslands, Færeyja og Grænlands um samstarf landanna þriggja í ferðamálum.
 
 
Allir sem áhuga hafa á bættum samskiptum á sviði ferðamála milli landanna þriggja geta leitað eftir aðstoð við að fjármagna verkefni, hugmyndir, ferðir eða því um líkt. Umsóknir skulu fela í sér samstarf milli tveggja af löndunum þremur hið minnsta.
 
Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum:
 
Þróun ferða
Siglingar, þemaferðir, stuttar heimsóknir (shortbreak) o.s.frv.
 
Markaðssetning í ferðaþjónustu og greining sóknartækifæra
Alþjóðleg átaksverkefni á sviði ferðaþjónustu.
 
Menntun
Faglegar námsferðir, menntun á sviði ferðamála,
dvöl til að kynna sér aðstæður.
 
Allar umsóknir skulu vera á þar til gerðum eyðublöðum. Sem fylgiskjöl með umsókninni skal leggja fram nákvæma útlistun á verkefni, svo og fjárhagsáætlun. Umsóknir skulu vera á dönsku eða
ensku og sendast til:
 
NATA c/o
Ferðamálastofa
Geirsgata 9,
101 Reykjavík
 
Lokafrestur til að senda umsóknir er til 4. september 2010
 
Umsóknareyðublað:
 
-Hægrismellið á tenglana hér fyrir neðan og veljið "Save Target As" til að vista umsóknareyðublöðin á eigin tölvu.
 
 
Fyrirspurnir varðandi vinnslu umsóknar sendist til:
 
NATA er samstarfssamningur ferðamálaráðuneyta í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi. Markmið samningsins er að auka skilvirkni í samstarfi aðila er sinna ferðamálum í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi með því að styrkja, samhæfa og tryggja framboð samvinnuverkefna aðildarlandanna á þeim sviðum ferðamála þar sem þau eiga einkum sameiginlegra hagsmuna að gæta.
 

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.