haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Landeyjahöfn. kynningar- og umræðufundur á Hvolsvelli. Heimamönnum umhugsað um smábátaaðstöðu.

11. júní 2010

 
Í gær,  fimmtudaginn 10. júní kl. 20:30 var haldinn kynningar- og umræðufundur í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli. Umræðuefni fundarins var Landeyjahöfn og málefni tengd henni - staða framkvæmda, framtíðarhorfur, tækifæri , o.fl. Að fundinum stóðu Atvinnuþróunarfélag Suðurlands og Sveitarfélagið Rangárþing eystra.
 
Fundurinn var mjög vel sóttur en um 80 manns mættu á fundinn. Fundurinn var öllum opinn. 7 framsögumenn héldu erindi á fundinum. Eftir framsögur var tekið við fyrirspurnum úr sal, góðar umræður sköpuðust. Helsta umræðuefni heimamanna sneri að smábátaaðstöðu sem væntingar eru um að muni koma í Landeyjahöfn. Ísólfur Gylfi Pálmason, tilvonandi sveitarstjóri Rangárþings eystra lokaði síðan fundinum. Fundinum lauk um kl. 23:00
 
 
1. Gísli Viggósson, Siglingastofnun – Framgangur framkvæmda. Glærur
2. Sigurður Áss Grétarsson, Siglingastofnun – Verklegar framkvæmdir. Glærur
3. Guðmundur Nikulásson, Eimskip – Skipið, þjónustan og flutningar. Glærur
4. Kristín Sigurbjörnsdóttir,  Vegagerðin – Fjöldi ferða, gjaldskrá o.fl. Glærur
5. Friðrik Pálsson, Hótel Rangá – Ferðaþjónustan. Glærur
6. Elvar Eyvindsson, Sveitarfélagið Rangárþing eystra – Nýir nágrannar, ný tækifæri. Glærur
7. Hrafn Sævaldsson, Atvinnuþróunarfélag Suðurlands – Nýir nágrannar, ný tækifæri. Glærur
 

Innskráning á styrkumsóknir

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.