haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Fyrstu úthlutun lokið hjá Vaxtarsamningi Suðurlands (VSS)

07. júní 2010

 
Í apríl 2010 auglýsti Vaxtarsamningur Suðurlands eftir umsóknum vegna styrkja til uppbyggingar klasa og framgang rannsóknar og þróunar á sviði matvæla, ferðaþjónustu og iðnaðar á Suðurlandi. Óskað var eftir umsóknum frá klösum eða/og samstarfsverkefnum sem tengjast nýsköpun með skýrri verðmætasköpun. Í boði voru 20 milljónir. Umsóknafrestur var til og með 10. maí 2010
 
Á öðrum fundi verkefnisstjórnar samningsins þann 1. júní 2010, var tekin ákvörðun um að styrkja 11 verkefni af þeim 22 sem sent höfðu inn umsókn. Heildarupphæð úthlutaðra styrkja var 19,1 mkr.
 
1. Aukin arðsemi hrognavinnslu með aukinni skynjara- og upplýsingatækni, 3,0 mkr.
2. Margmiðlunartorg, 2,5 mkr.
3. Hlývatnseldi á hvítfiski, 1,1 mkr.
4. Vetrarferðir í Skaftárhrepp, 2,5 mkr.
5. Ríki Vatnajökuls, 3,0 mkr.
6. Smáframleiðsla matvæla í Ríki Vatnajökuls, 1,5 mkr.
7. Átaksverkefni HfSu í Uppsveitum Árnessýslu – Matvælasmiðja, 2,0 mkr.
8. Fuglar á Suðurlandi, 2,0 mkr.
9. Nýting jarðgufu við framleiðslu á soðum og bragðkjörnum, 500 þús.kr.
10. Framleiðsla á lúpínuseyði, 500 þús. kr.
11. Þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu í grannbyggðum Vatnajökulsþjóðgarðs á Suðurlandi, 500 þús. kr.
 
 
Næsta úthlutun
Stefnt er að auglýsa eftir nýjum umsóknum þann 9. september 2010, með umsóknarfrest til 15. október 2010. 15 mkr. verða þá til úthlutunar. Nánara fyrirkomulag verður auglýst síðar.
 
Nánari upplýsingar um samninginn, fundargerðir o.fl. er á heimasíðu Atvinnuþróunarfélags Suðurlands og Vaxtarsamnings Suðurlands: http://sudur.is/sidur/2010-2013-samningur2  
 

Innskráning á styrkumsóknir

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.