haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Styrkjamöguleikar: Vistvæn nýsköpun, bættar framleiðsluaðferðir - kynningarfundur 23. apríl

20. apríl 2010

Föstudaginn 23. apríl verður Enterprise Europe Network á Íslandi ( Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands ) með kynningarfund um evrópsk verkefni sem ganga út á nýja tækni, vörur eða framleiðsluaðferðir í atvinnugreinum þar sem umtalsverðir möguleikar eru á betrumbótum, t.d. í matar- og drykkjarframleiðslu, endurvinnslu og byggingariðnaði.
 
Áhersla er lögð á verkefni sem komin eru á markaðsfærslustig þ.e. tækni, vöru eða framleiðsluaðferðir sem sýnt hefur verið fram á að virki tæknilega en ekki búið að koma í notkun á markaðinum enn sem komið er. Verkefnin skulu ennfremur miða að því að minnka umhverfisáhrif eða betrumbæta frammistöðu fyrirtækja í umhverfismálum.
 
 
Fundurinn verður haldinn hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Keldnaholti 23. apríl 2010 - kl. 9.00-11.00.
 
Við hvetjum ykkur til að mæta á fundinn. Vinsamlegast skráið þátttöku á netfangamanda@nmi.is .
 
Allar frekari upplýsingar er hægt að fá hjá Amöndu Garner í síma 522 9268.
 

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.