haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Umsóknarfrestur Nýsköpunarsjóðs námsmanna framlengdur til 14. apríl

12. apríl 2010

Umsóknafrestur vegna aukafjárveitingar til Nýsköpunarsjóðs námsmanna hefur nú verið framlengdur. Frestur til að skila inn umsóknum er miðvikudagurinn 14. apríl klukkan 16.00. Úthlutun úr sjóðnum mun liggja fyrir í byrjun maí.

Styrkir verða veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja. Umsóknir um styrki eru metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein.

Vinna á vegum Nýsköpunarsjóðs hefur verið vettvangur fyrirtækja til að mynda tengsl við nemendur og oft hafa þau tengsl leitt til atvinnutilboða að námi loknu. Sjóðurinn er því einnig ákjósanlegur vettvangur fyrir nemendur til að kynnast framsæknustu fyrirtækjum og stofnunum landsins.

Styrkupphæðin fyrir árið 2010 er 140.000 kr. á mánuði. Ekki er sjálfgefið hve margra mánaða styrk nemendur hljóta en hámark miðast við 3 mánaðargreiðslur til sama nemanda. Fjöldi styrktra mánaða ræðst af umfangi og gæðum rannsóknarverkefnisins.

Háskólanemar í grunn- og meistaranámi geta sótt um. Einnig sérfræðingar innan fyrirtækja, stofnana og háskóla sem óska að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknir

Umsóknareyðublað má finna á heimasíðu Rannís, www.rannis.is . þar er jafnframt að finna reglur og leiðbeiningar varðandi sjóðinn. Nánari upplýsingar veitir Guðný Hallgrímsdóttir, gudny@rannis.is , sími 515 5818.

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.