haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Vaxtarsamningur Suðurlands - Styrkir til eflingar nýsköpunar og samkeppnishæfni atvinnulífsins á Suðurlandi

08. apríl 2010

Vaxtarsamningur Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrk til uppbyggingar klasa og framgang rannsóknar og þróunar á sviði matvæla, ferðaþjónustu og iðnaðar á Suðurlandi. Starfsvæði Vaxtarsamnings Suðurlands markast af Hellisheiði í vestri og eystri mörkum Sveitarfélagsins Hornafjörður.

 
Óskað er eftir umsóknum frá klösum eða/og samstarfsverkefnum sem tengjast nýsköpun með skýrri verðmætasköpun. Gerð er krafa til þess að verkefnin styðji atvinnulíf og samfélag á Suðurlandi.
 
Í boði eru 20 milljónir. Mótframlag verkefnisins þarf að vera 50% hið minnsta. Verkefni þar sem fyrirtæki, rannsóknar – þróunar og háskólastofnanir vinna saman njóta alla jafna forgangs. Að auki verður horft til þess að verkefnin skili ábata og störfum út í samfélagið á verkefnatímanum.
 
Í umsókninni á að koma fram lýsing á verkefninu, skýr útlistun á nýnæmi hugmyndarinnar og ætluðum ávinningi ásamt kostnaðar- fjármögnunar- og tímaáætlun. Ekki er veittur styrkur til fjárfestinga.
 
Rafræn umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur má finna á vef Atvinnuþróunarfélags Suðurlands www.sudur.is
 
Sérstaklega er bent á að hægt er að vista umsóknareyðublöð meðan þau eru í vinnslu. Einungis er tekið við umsóknum í gegnum heimasíðu félagsins.
 
Umsóknafrestur er til og með 10. maí 2010
 
Móttaka umsókna
 
Einungis er tekið við umsóknum sem sendar eru í gegnum heimasíðu félagsins hér að neðan.
 
Ef væntanlegir umsækjendur lenda í vandræðum með að fylla inn í umsóknarformið er hægt að hafa samband við starfsfólk félagsins og mun starfsfólkið þá veita alla mögulega aðstoð.
 
Upplýsingar eru veittar hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands www.sudur.is í síma 4812961 (Vestmannaeyjar), 4874822 (Hella) og 4808210 (Selfoss)
 
Smelltu hér til að fylla inn í rafræna umsókn
 

Innskráning á styrkumsóknir

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.