Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fækkun íbúa á Suðurlandi
06. apríl 2010
Íbúum á Suðurlandi fækkaði um 1,22% á tímabilinu 1. des 2008 – 1. des. 2009. Sunnlendingar voru 24.176 árið 2008 en fækkaði í 23.881 á árinu 2009 eða um 295 manns. Mest varð fækkunin í sveitarfélaginu Árborg (-118) en mest var fjölgunin í Vestmannaeyjum ( 39). Athyglisvert er að í Mýrdalshreppi fjölgaði íbúum um tæp 5% á milli ára. Íbúar þeirra 14 sveitarfélaga á Suðurlandi sem eru á starfssvæði AÞS eru um 7,5% íslendinga. Fækkun varð í 9 sveitarfélögum en fjölgun í 5.


























