haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Krásir - Fræðslu- og þróunarverkefni í svæðisbundinni matargerð. Umsóknarfrestur til 18. mars

10. mars 2010

Impra á Nýsköpunarmiðstöð og Ferðamálastofa óska eftir umsóknum um þátttöku í verkefninu Krásir sem er fræðslu og þróunarverkefni í svæðisbundinni matargerð. Í verkefnin verður boðið upp á fræðslu auk faglegs og fjárhagslegs stuðnings við þróun og sölu matvæla.
 
Þátttaka í verkefninu er opin einstaklingum og litlum fyrirtækjum á landsbyggðinni, eða samstarfshópum einstaklinga og lítilla fyrirtækja, sem óska eftir að vinna saman við þróun á matvörum. Matvörurnar þurfa að vera ákveðin nýjung, en hafa um leið sterka skírskotun til viðkomandi svæða eða menningar. Verkefnin þurfa einnig að vera í sterkum tengslum við ferðaþjónustu, t.d. með sölu beint til ferðamanna, á sveitahótelum, gististöðum eða í veitingahúsum á landsbyggðinni.
 
Umsóknarfrestur er til 18. mars 2010.
 
Rafræn umsókn er á http://impra.sidan.is  ásamt leiðbeiningum um útfyllingu. Mikilvægt er að vanda útfyllingu umsóknarinnar og fylgja þeim leiðbeiningum sem eru gefnar.
 
Nánari upplýsingar gefa Sigríður Ó. Kristjánsdóttir verkefnisstjóri í síma 522.9462 eða tölvupósti sirry@nmi.is og Sigurður Steingrímsson verkefnisstjóri í síma 522-9435 522-9435 eða tölvupósti sigurdurs@nmi.is

Innskráning á styrkumsóknir

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.