haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Námskeið í markaðssetningu á netinu 8. mars – einnig í fjarfundabúnaði

22. febrúar 2010

 
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands í samvinnu við Útflutningsráð Íslands og mbl.is mun bjóða upp á námskeið í markaðssetningu á netinu byggt á samnefndri bók sem var að koma út. Kennarar eru Guðmundur Arnar, markaðsstjóri hjá Icelandair og Kristján Már hjá Nordic eMarketing.
 
Um hvað snýst námskeiðið?
Farið verður yfir helstu samskiptaleiðir netsins á hagnýtan hátt með áherslu á hvernig þær geta skapað miklar tekjur. Markmiðið er að þátttakendur öðlist þekkingu sem nýtist þeim strax í starfi.
Kennslan byggir á bókinni "Markaðssetning á netinu" en bókin er innifalin í þátttökugjaldi námskeiðsins.
 
Námskeiðið stendur frá kl. 18:00 - 22:00 þann 8. mars í húsnæði Háskólafélags Suðurlands, Tryggvagötu 36, Selfossi en boðið verður upp á námskeiðin í fjarfundabúnaði í:
 
• Vestmannaeyjum – Viska, Strandvegi 50
• Vík í Mýrdal - Víkurskóli
• Kirkjubæjarklaustur – Kirkjubæjarskóli
• Hvolsvöllur – Tónskóli Rangæinga
• Flúðir – Félagsheimili Hrunamanna
 
Verð fyrir námskeið og bók er 18.500 kr.
 
Skráning er hjá www.online.is , á netfangið inga@online.is  eða í síma 540 9505 fyrir 5. mars.
 
Helstu þættir:
- Netið, breytingar og tækifæri
- Staðan í dag
- Vefborðar
- Leitarvélar
- Samfélagsmiðlar
- Kaffi, smá pása og spjall
- Tölvupóstar
- Vefgreiningartól
 
Um bókina sem er innifalin í námskeiðinu:
Bókin " Markaðssetning á netinu" hefur það að leiðarljósi að vera hagnýt verkfærakista fyrir íslenskt markaðsfólk sem er eða vill byrja að nota netið í sínu markaðsstarfi. Í henni er fjallað um allar helstu samskiptaleiðir netsins.
 
Bókin er jafnframt full af nýjum innlendum og erlendum rannsóknum um notkun fólks á netinu og hvernig ná má hámarksárangri. Ennfremur eru í bókinni fjölmargar íslenskar dæmisögur og tölur sem íslenskt markaðsfólk getur nýtt sér í daglegu störfum.
Í dag er allt markaðsstarf meira og minna unnið með netið í huga. Bókin kynnir nýjar áður óbirtar rannsóknir sem sýna hversu langt Íslendingar hafa náð í notkun netsins. Tækifæri íslenskra fyrirtækja eru því fjölmörg.
 
Eftir námskeiðið og lestur bókarinnar ætti fólk að vera mun betur upplýst um:
•...þær breytingar sem orðið hafa á hegðun neytenda
•...hið breytta umhverfi sem fyrirtæki og vörumerki starfa í
•...þau fjölmörgu tækifæri sem eru á netinu í dag og hægt er að nýta með litlum tilkostnaði
•...hvernig ná má hámarksárangri með vefborðum
•...hvernig ná má hámarksárangri með leitarvélum
•...hvernig ná má hámarksárangri með samfélagsmiðlum (Facebook o.s.frv.)
•...hvernig ná má hámarksárangri með tölvupóstum
•...hvernig netið kemur inn í hefðbundnar birtingaáætlanir
•...á hvern hátt vefgreiningartól virka og hvernig best er að nota þau
•...og fleira og fleira!
 
Fyrirlesarar og höfundar bókarinnar "Markaðssetning á netinu"
 
Guðmundur Arnar Guðmundsson er hagfræðingur frá Acadia University í Kanada og með MBA gráðu frá Háskóla Íslands. Hann hefur ritað fjölda greina um viðskipti og markaðsmál í tímarit og blöð á Íslandi og situr í stjórn ÍMARK, félags markaðsfólks á Íslandi. Hann hóf störf við markaðsmál hjá 365 ehf. en flutti til Englands 2006 og starfaði þar hjá Icelandair sem markaðsstjóri breska sölusvæðisins. Nú starfar Guðmundur Arnar í markaðsdeild Icelandair á Íslandi og fer fyrir markaðsstarfinu á Íslandi, hann sér um markaðsrannsóknir fyrirtækisins ásamt því að koma að stefnumótandi uppbyggingu vörumerkisins Icelandair.
 
Kristján Már Hauksson hefur komið víða við hann lærði rafeindavirkjun í Iðnskólanum í Reykjavík, kerfisfræði við Tölvu og verkfræðiskólann og er með internet markaðsfræðigráðu frá University of British Columbia. Hann stofnaði Nordic eMarketing og starfar þar sem sviðsstjóri net- markaðssetningar. Þar sérhæfir hann sig í leitarvélamarkaðssetningu og net-almannatengslum (ePR - Online PR). Kristján Már stofnaði íslenska SEO/SEM samfélagið og skrifar reglulega á Multilingualsearch.com. Kristján hefur unnið við netlausnir síðan 1996 og leitarvélamarkaðssetningu frá 1999. Hann er vinsæll fyrirlesari um þessa nýju miðla jafnt innanlands sem utan og hefur haldið fjölmörg námskeið.
 
 
 Kristján Már (t.v.) & Guðmundur Arnar (t.h.)

Innskráning á styrkumsóknir

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.