haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Iðnaðarráðuneytið auglýsir eftir fyrirtækjum til þátttöku í ráðstefnunni

14. febrúar 2010

 
Ráðstefna þessi, sem nú verður haldin í 12. sinn, er helsta markaðstorg Noregs á sviði markaðssetningar, auglýsinga og margmiðlunar. Áhersla er lögð á að kynna notkun nýjustu tækni margmiðlunar svo og stefnu og strauma á sviði kynningar og markaðssetningar.
 
Í ár er lögð sérstök áhersla á fjárfestingar í nýsköpun og grænni atvinnustarfsemi á eins dags ráðstefnu í tengslum við Gulltaggen.
 
Veittur verður ferðastyrkur til allt að 10 fyrirtækja í eftirtöldum flokkum.
 
1) Styrkur til 4 fyrirtækja á svið fjölmiðlunar sem sérhæfa sig í markaðssetningu, kynningarmálum og margmiðlun. Reiknað er með að þau fyrirtæki sem fái styrki, setji saman upp kynningu (workshop) til að markaðssetja og kynna sig og íslenskt hugvit í þessum geira. Styrkur til þátttöku í ráðstefnunni dagana 27.-29. apríl.
 
2) Styrkur til 3 fyrirtækja á sviði umhverfisvænna lausna (clean tech) með áherslu á sjálfbæra nýtingu auðlinda, endurvinnslu, nýjar orkulausnir svo sem orkusparnað og orkulausnir í samgöngum. Styrkur til þátttöku í ráðstefnunni 28. og 29. apríl, og þátttaka í dagskrá um fjárfestingar í nýsköpun og grænni atvinnustarfsemi.
 
3) Styrkur til 3 fyrirtækja sem sérhæfa sig í umhverfisvænum lausnum fyrir sjávarútveg, fiskveiðar og sjóflutninga. Styrkur til þátttöku í ráðstefnunni 28. og 29. apríl, og þátttaka í dagskrá um fjárfestingar í nýsköpun og grænni atvinnustarfsemi.
 
Þau fyrirtæki sem styrkt verða þurfa að hafa nýsköpun að leiðarljósi í sínu starfi.
 
Áhugasamir sendi inn umsókn til iðnaðarráðuneytis fyrir 26. febrúar n.k.
 
Í umsókninni þurfa að koma fram upplýsingar um starfsemi og markmið fyrirtækisins og stutt greinargerð um það hvaða ávinning fyrirtækið telur sig hafa af þátttöku í ráðstefnu sem þessari.
 
Umsóknin sendist á rafrænu formi til Helgu Barðadóttur, sem einnig veitir nánari upplýsingar.
 
Netfang: helga.bardadottir@idn.stjr.is  , sími: 545 8500.
 
Heimasíðu ráðstefnunnar: http://www.gulltaggen.no
 

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.