Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Fiskræktarsjóður - umsóknarfrestur til 1. mars
14. febrúar 2010
Fiskræktarsjóður starfar á grundvelli laga nr. 72/2008. Meginhlutverk sjóðsins er að veita lán og styrki til verkefna sem þjóna þeim markmiðum að efla fiskrækt, bæta veiðiaðstöðu, styðja við rannsóknir í ám og vötnum og auka verðmæti veiði úr þeim.
Umsóknir um lán og styrki úr Fiskræktarsjóði, sem koma til greiðslu árið 2010, skal senda stjórn sjóðsins fyrir 1. mars 2010.
Umsóknareyðublöð vegna styrkveitinga úr Fiskræktarsjóði má nálgast á http://www.fiskistofa.is undir lax- og silungsveiði.
Þar má einnig nálgast verklagsreglur sjóðsins. Einnig er hægt að hafa samband
við Jóhönnu E. Pálmadóttur, Akri, sími 452-4290 eða starfsmann sjóðsins Marínu E. Samúelsdóttur í síma 569 7900 ef viðkomandi hefur ekki aðgang að tölvu.
Umsóknum um styrki eða lán úr sjóðnum skal skila til formanns Fiskræktarsjóðs á sérstöku eyðublaði á eftirfarandi heimilisfang:
Fiskræktarsjóður,
Jóhanna E. Pálmadóttir formaður,
Dalshrauni 1b,
220 Hafnarfirði.

























