haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Tækjasjóður- Umsóknarfrestur til 1. mars 2010

13. febrúar 2010

 
Hlutverk Tækjasjóðs er að veita rannsóknastofnunum styrki til kaupa á dýrum tækjum og búnaði til rannsókna. Við úthlutun úr Tækjasjóði er tekið mið af úthlutunarstefnu Rannsóknasjóðs og eru eftirtalin atriði lögð til grundvallar:
 
• Að tækin eða búnaðurinn séu mikilvæg fyrir framfarir í rannsóknum á Íslandi og fyrir rannsóknir umsækjenda.
 
• Að fjárfesting í tækjabúnaði sé til uppbyggingar nýrrar aðstöðu sem skapi nýja möguleika til rannsókna eða að tæki tengist verkefnum sem Rannsóknasjóður og markáætlun um öndvegissetur og klasa styrkir.
 
• Að tækin eða búnaðurinn séu staðsett á rannsókna- og háskólastofnunum.
 
• Að samstarf verði um nýtingu tækja milli stofnana eða milli stofnana og fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti.
 
• Að áætlanir um kostnað og fjármögnun á kaupunum séu raunhæfar.
 
 
Framlag Tækjasjóðs greiðir aðeins hluta kostnaðar við fjárfestinguna.
 
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um Tækjasjóð eru á www.rannis.is  
 
 
Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd vísinda- og tæknistefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda- og tæknisamfélagsins. Í vörslu Rannís eru opinberir samkeppnissjóðir s.s. Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og nýsköpun á Íslandi og gerir áhrif rannsókna og nýsköpunar á þjóðarhag og hagvöxt sýnilegan. Rannís er miðstöð upplýsinga og miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og tæknisamfélagsins.
 
 

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.