Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Nýr Vaxtarsamningur fyrir Suðurland undirritaður - myndir
12. febrúar 2010
Miðvikudaginn 10. febrúar s.l. var undirritaður nýr Vaxtarsamningur fyrir Suðurland sem verður í gildi til ársins 2013. Samtímis voru undirritaðir 7 aðrir vaxtarsamningar fyrir aðra landshluta. Stærsta árlega framlagið er til Suðurlands, enda um fjölmennasta landssvæðið að ræða sem vaxtarsamningarnir ná til. Einnig var horft til þéttleika byggðar, atvinnuleysis, íbúaþróunar og hagvaxtar á hverju svæði. Sú nýbreytni, frá fyrri samningi, Vaxtarsamningi Suðurlands og Vestmannaeyja (VSSV) sem í gildi var á árunum 2006 – 2009 er að sveitarfélagið Hornafjörður er kominn inn í Suðurlandssamninginn.
Árleg heildarframlög til samninganna átta er 215 milljónir króna, þar af er árlegt framlag til Suðurlands 35 mkr. Atvinnuþróunarfélag Suðurlands mun koma að rekstri samningsins eins í fyrri samningi. Ekki er fullljóst hvernig staðið verður að framkvæmd og rekstri samningsins. Það er þó ljóst að samningurinn nú verður með breyttu sniði frá fyrri samningi. Nánar verður um tilkynnt með góðum hætti hvernig staðið verður að málum.
Í drögum iðnaðarráðherra að byggðaáætlun 2010 til 2013 er byggt á því að vaxtarsamningarnir verði ein helsta burðarstoð atvinnuþróunar og nýsköpunar í áætluninni. Tilgangurinn er að efla staðbundna klasa og auka áhrif heimamanna á stefnumótun, framkvæmd og eftirfylgni.
Mið er tekið af þeirri vinnu sem nú er í gangi við gerð heildstæðrar sóknaráætlunar fyrir alla landshluta og skipting samninganna að nokkru samræmd svæðaskiptingu áætlunarinnar. Þannig verður sveitarfélagið Hornafjörður nú hluti af vaxtarsamningi Suðurlands. Vaxtarsamningar fyrir Eyjafjörð og Norðausturland gilda til ársloka 2010 en gerðir voru viðaukasamningar við þá. Samningur við Norðurland Vestra gildir óbreyttur til ársloka 2010. Samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2010 er gert ráð fyrir að fjárveiting til vaxtarsamninga verði 215 m.kr. á því ári en ákvæði í samningunum um fjármögnun næstu ára eru með fyrirvara um fjárveitingar Alþingis.
Í stað þess að leggja sömu fjárhæð til allra samninganna eða miða eingöngu við fólksfjölda var ákveðið að taka tillit til mismunandi aðstæðna á hverju svæði fyrir sig. Fólksfjöldi, vegalengdir, samgöngur og atvinnustig skipta til dæmis miklu máli. Við skiptingu fjár til vaxtarsamninga er miðað við fimm lykilþætti sem vegnir eru saman. Þeir eru fólksfjöldi á svæðinu, þéttleiki byggðar (hálendissvæði ofan 200 m.y.s. ekki reiknuð með), atvinnuleysi, íbúaþróun og hagvöxtur síðustu ár. Samanlagt er með þessu tekið tillit til bæði þróunar undanfarinna ára og sérstakra aðstæðna.
Niðurstaðan úr matinu varð eftirfarandi skipting fyrir árið 2010 sem nýir vaxtarsamningar byggja á:
Suðurland: 35 milljónir króna.
Suðurnes: 27 milljónir króna
Vesturland: 25 milljónir króna
Vestfirðir: 27 milljónir króna
Norðurland vestra: 30 milljónir króna
Eyjafjörður: 26 milljónir króna
Norðausturland: 24 milljónir króna
Austurland: 20 milljónir króna
Forsvarsmenn samninganna með iðnaðarráðherra eftir undirritun nýrra vaxtarsamninga
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra og Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, undirrita samninginn fyrir Suðurland
Fulltrúar vaxtarsamninganna á fundi með iðnaðarráðherra

























