haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

NORA-styrkir - Umsóknarfrestur til 8. mars

12. febrúar 2010

 
Norræna Atlantssamstarfið, NORA, úthlutar verkefnastyrkjum tvisvar á ári. Nú er komið að fyrri úthlutun ársins 2010.
 
NORA veitir að jafnaði styrki í eftirtöldum málaflokkum:
  • Auðlindir hafsins
  • Ferðaþjónusta
  • Upplýsingatækni
  • Samgöngur og flutninga
  • Annað svæðasamstarf
Að þessu sinni verður einnig lögð áhersla á landbúnað.
 
Umsóknarfrestur er 8. mars og þarf að skila umsóknum á skrifstofu NORA, Bryggjubakka 12, postboks 259, FO-110 Tórshavn, Föroyar.
 
Umsóknum skal skila rafrænt, en einnig má skila þeim undirrituðum í pósti ásamt fylgiskjölum.
 
Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu NORA.
 
Upplýsingar um starfsemi NORA og verkefnastyrki má finna hér á síðunni. Sjá einnig heimasíðu NORA, http://www.nora.fo/  
 
Nánari upplýsingar og ráðgjöf veitir Sigríður K. Þorgrímsdóttir hjá Byggðastofnun, sem jafnframt er tengiliður NORA. Sími 455 5400 455 5400 og netfang: sigga@byggdastofnun.is

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.