haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Auglýsing um styrki úr mótvægissjóði velferðarvaktarinnar

12. febrúar 2010

 
Velferðarvaktin auglýsir eftir umsóknum í mótvægissjóð vaktarinnar í samræmi við reglur sjóðsins. Tilgangur sjóðsins er að styðja við aðgerðir sem draga úr afleiðingum efnahagskreppunnar fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu. Að þessu sinni eru til ráðstöfunar 15 milljónir króna. Styrkfjárhæð skal að jafnaði ekki vera lægri en 500.000 krónur og að hámarki helmingur heildarkostnaðar við verkefni.
 
Verkefni sem til greina kemur að styrkja eru:
 
• Ný tímabundin verkefni fyrir tiltekna hópa sem orðið hafa illa úti í efnahagsástandinu.
• Sérstök verkefni til að styðja starfsfólk sem aðstoðar þá sem eiga í miklum erfiðleikum.
• Samræming verkefna og samstarfsverkefni á vegum þriðja geirans.
 
Umsóknarfrestur er til 1. mars næstkomandi.
 
Sótt skal um styrk á sérstöku umsóknareyðublaði.
 
 
 
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Broddadóttir í síma 545 8100 eða með tölvupósti um netfangið ingibjorg.broddadottir@fel.stjr.is

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.