Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Umhverfis- og orkurannsóknasjóðiur OR. Umsóknarfrestur til 1. mars
27. janúar 2010
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Umhverfis- og orkurannsóknasjóði OR, sem hefur 50 milljónir til ráðstöfunar 2010.
Hlutverk Umhverfis- og orkurannsóknasjóðs OR er að efla rannsóknir, þróun og nýsköpun á sviði umhverfis- og orkumála, þar með taldar þverfaglegar rannsóknir.
Markmiðið er að veita styrki til háskóla- og nýsköpunarrannsókna á sviði umhverfis- og orkumála og treysta samstarf Orkuveitunnar við sérfræðinga og vísindamenn sem stunda rannsóknir á sviðinu.
Sjóðurinn veitir styrki til verkefna í umhverfis- og orkurannsóknum sem varða:
- Hagnýtar framfarir í kjarnastarfsemi Orkuveitu Reykjavíkur, uppbyggingu og rekstri vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu, fráveitu eða gagnaveitu
- Tengsl starfsemi OR við umhverfi, samfélag og efnahag
- Aukna hagnýtingu endurnýjanlegra orkugjafa
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi 1. mars 2010.

























