Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Sóknarbraut í Árnesi og Þorlákshöfn - umsóknarfrestur til 29. janúar
25. janúar 2010
Sóknarbraut er hagnýtt námskeið um rekstur fyrirtækja með áherslu á þróun hugmynda, markaðssetningu, stjórnun og fjármál. Námskeiðið er 40 kennslustundir sem skiptast í 10 hluta. Markmiðið er að veita þátttakendum hagnýta menntun og stuðning sem hvetur þá til að koma hugmyndum sínum í framkvæmd og nýta þau tækifæri sem eru til staðar. Menntunin fer fram á fræðilegum og faglegum grunni og á námstímanum vinna þátttakendur að ákveðnu verkefni sem byggir á þeirra eigin viðskiptahugmynd.
Námskeiðslýsing og dagskrá
Tilgangur námskeiðsins er að brúa bilið á milli hugmyndar og markvissrar framkvæmdar með því að leiðbeina og þjálfa þátttakendur í því að takast á við frumkvöðlastarf, stjórnun og rekstur fyrirtækis. Sóknarbraut er opin jafnt körlum sem konum og ekki er gerð krafa um sérstaka undirbúningsmenntun. Meginskilyrði fyrir þátttöku eru að þátttakandi hafi viðskiptahugmynd til að vinna með, sé að hefja rekstur eða sé nú þegar í rekstri.
Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, þjálfun, viðtölum og verkefnum sem tengjast þeirri hugmynd sem hver einstaklingur vinnur að hverju sinni.
Kennslan fer fram með fyrirlestrum og verkefnum í kennslutímum. Námskeiði er 40 klukkustundir sem dreifast á 10 skipti. Kennt er í 4 tíma í senn. Náminu lýkur með kynningu nemenda á verkefnum sínum og útskrift.
Námskeiðið kostar 35.000 kr. og eru öll námskeiðsgögn innifalin. Umsækjendum er bent á að kanna möguleika á styrk frá viðkomandi stéttarfélagi.
Næstu tvö námskeið Sóknarbrautar verða í annars vegar Árnesi og hins vegar Þorlákshöfn vorið 2010. Námskeiðið hefst 3. febrúar og kennt verður í Þorlákshöfn frá 09:00-13:00 og í Árnesi frá 14:00 18:00. Námskeiðin eru kennd á miðvikudögum.
Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi á heimasíðunni www.impra.is .
Umsóknarfrestur fyrir Sóknarbraut á Suðurlandi er til 29. janúar 2010.
Nánari upplýsingar veitir Selma Dögg Sigurjónsdóttir í síma 522 9434 eða á selma@nmi.is

























