haus
Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>

Frumkvöðlakeppnin Gulleggið - Taktu þátt fyrir 20. janúar!

15. janúar 2010

 
Frumkvöðlakeppni Innovit er tækifæri fyrir frumkvöðla til að öðlast reynslu, þekkingu og tengslanet til að koma sínum hugmyndum á framfæri og vinna að stofnun nýrra og öflugra fyrirtækja á Íslandi.
 
 
Innovit stendur nú fyrir keppninni um Gulleggið í þriðja sinn. Allir hafa þátttökurétt í keppninni, en hún er haldin að fyrirmynd samskonar keppni við MIT háskóla í Bandaríkjunum og sambærilegra keppna á Norðurlöndunum sem kallast Venture Cup.
 
I. Hluti: Skráning og 1-2 blaðsíðna ágripi um viðskiptahugmynd er skilað inn. Skilafrestur: 20. Janúar.
 
II. Hluti: Fullmótaðri viðskiptaáætlun er skilað inn. Skilafrestur: 8. Mars.
 
III. Hluti: Rýnihópur sérfræðinga velur 10 bestu viðskiptaáætlanirnar að því gefnu að þær standist gæðakröfur Innovit. Þátttakendur kynna þær fyrir dómnefnd og fjárfestum. Kynningar fara fram 10. apríl 2009.
 
Heildarverðmæti vinninga er metið yfir 3.000.000 kr, þar af 1.800.000 í beinum peningum.
 
Frumkvöðlakeppni Innovit er samstarfsverkefni öflugra íslenskra fyrirtækja og háskóla sem í sameiningu leggja sitt af mörkum til uppbyggingar íslensks atvinnulífs til framtíðar og miðla af reynslu og þekkingu sinni til næstu kynslóðar stjórnenda í fyrirtækjum á Íslandi. Við þökkum kærlega fyrir ómetanlegan stuðnings til uppbyggingar atvinnulífs og nýrra tækifæra á Íslandi.
 
 
Sjá nánar hérna

Póstlisti

© Atvinnuþróunarfélag Suðurlands. Vinsamlega getið heimilda ef efni af vef okkar er birt á öðrum vettvangi.