Þjónusta félagsins >>
Styrkir >>
Starfsfólk >>
Fundargerðir >>
Tengdir vefir >>
Kynningarmál >>
Sjálfbærni og samfélagsábyrgð í fjárfestingum og fjármálastjórnun - námskeið
14. október 2009
Sú fjármálakreppa sem riðið hefur yfir heiminn hefur stórlega ýtt undir kröfur um aukna ábyrgð og sjálfbærni í fjármálum og fjárfestingum. Því standa Útflutningsráð Íslands og Eþikos í samvinnu við Fjárfestingarstofu, Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins, Samtök fjárfesta og Samtök fjármálafyrirtækja fyrir námskeiði um sjálfbærni og samfélagslega ábyrgar fjárfestingar og fjármálastjórnun.
Námskeiðið er haldið föstudaginn 23. október 2009, kl. 08.30 - 16.00 í Háskólanum í Reykjavík.
Markmið námskeiðsins er að kenna hvernig haga megi fjármálastjórnun og fjárfestingum undir formerkjum samfélagsábyrgðar og gera þátttakendum kleift að sækjast eftir þeim fjárhagslega ávinningi og tækifærum sem í því felast.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Jean-Dominique Rugiero, stjórnandi fyrirtækisins Daxam Sustainability Services í Svíþjóð en hann hefur ráðlagt bæði opinberum stofnunum, alþjóðlegum fyrirtækjum sem og litlum og meðalstórum fyrirtækjum í yfir 20 löndum um þessi mál.
Fyrir hverja er námskeiðið?
- Fyrirtæki og stofnanir sem vilja kynna sér fjármálastjórnun undir formerkjum samfélagslegrar ábyrgðar og sjálfbærni
- Aðila sem vilja laða að samfélagsábyrgar fjárfestingar
- Fjárfesta sem vilja kynna sér nýjustu þróun á þessu sviði eða slást í sívaxandi hóp samfélagsábyrgra fjárfesta
Þátttökugjald er 39.900 kr., innifalið er námskeiðsgögn, hádegisverður og kaffi.
Skráning fer fram á netfanginu utflutningsrad@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000.
Nánari upplýsingar um námskeiðið veita Inga Hlín Pálsdóttir, inga@utflutningsrad.is og Stefán Einar Stefánsson, stefaneinar@ru.is .

























